Helgi Seljan, bæjarfulltrúi Biðlistans, tilkynnti á fundi bæjarráðs þann 9.ágúst að hann væri að flytja búferlum úr sveitarfélaginu og léti því að störfum í bæjarstjórn og nefndum sveitarfélagsins. Helgi er að taka við starfi á ritstjórn DV og er því á faraldsfæti suður um heiðar. Sæti hans í bæjarstjórn og bæjarráði tekur Ásmundur Páll Hjaltason.

Þá tekur Agla Heiður Hauksdóttir sæti hans í fræðslunefnd.