Heimir Már Pétursson, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Iceland Express, hefur snúið aftur á fréttastofu Stöðvar 2 en hann las hádegisfréttir Bylgjunnar í dag. Heimir er langt í frá nýgræðingur á Stöð 2 en hann var fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísi í sex ár þar til í fyrrasumar þegar hann fór yfir til Iceland Express.
Heimir missti vinnuna hjá Iceland Express ásamt fjölda annarra þegar Wow air keypti rekstur flugfélagsins seint í október.