Ómar Benediktsson
Ómar Benediktsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Ómar Benediktsson hefur verið ráðinn forstjóri Farice ehf., sem rekur sæstrengi milli Íslands og Evrópu.

Undanfarin misseri hefur Ómar gegnt ýmsum störfum fyrir Icelandair Group, nú síðast sem framkvæmdastjóri Smartlynx Airlines í Lettlandi.

Ómar starfaði áður hjá Air Atlanta, Íslandsflugi og Island Tours í Þýskalandi og fleiri löndum Evrópu. auk þess hefur hann gegnt starfi stjórnarformanns RÚV ohf. og varaformanns stjórnar Icelandair group.