Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur hneppt Halldór Viðar Sanne í vikulangt gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Fjölmargir Íslendingar hafa kært Halldór á síðustu dögum og vikum vegna svika. Halldór á sér langa sögu og hefur áður hlotið þungan dóm fyrir fjárdrátt. Fjallað er um málið í Fréttablaðinu .

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir við Fréttablaðið að maður sé í haldi lögreglu grunaður um fjársvik tengd leigustarfsemi. „Það er rétt að við yfirheyrðum í fyrradag mann sem grunaður er um fjársvik í tengslum við leigu íbúðarhúsnæðis.

Í fréttinni segir að Halldór hafi ítrekað gerst milliliður fyrir fólk í leit að húsnæði til leigu. Hefur Halldór tekið íbúðir á leigu og framleigt þær öðrum, stungið undan leigugreiðslum þeirra og greitt aðeins fyrsta mánuðinn til réttra eigenda.

Lögreglan gerir sér ekki alveg grein fyrir því á þessari stundu hversu mörg málin verða þegar öll kurl verða komin til grafar.

„Til að mynda kom inn á borð lögreglunnar ein kæra í gær og því getum við ekki með vissu sagt hversu mörg málin eru. Hins vegar get ég staðfest að þau eru nokkur sem um ræðir.“