Fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, Ursus ehf., hagnaðist um 227 milljónir króna á síðasta ári en hagnaður félagsins dróst saman um 22 milljónir króna frá 2016 þegar hagnaðurinn var 249 milljónir króna. Fréttablaðið greinir frá þessu .

Stærsta hlutabréfaeign félagsins er hlutur í Sýn en sá hlutur er bókfærður á tæpa 1,2 milljarða króna. Heildarhlutabréfaeign félagsins nemur alls 1.881 millljónum króna samanborið við 1.611 milljón króna árið 2016.

Stjórn Ursus lagði það til að ekki yrði greiddur út arður á árinu en eigið fé félagsins í árslok nam 808 milljónum króna.