Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] er nú 4.523 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur hún ekki verið lægri frá 12. október 2005, en lokagildi hennar þann dag var það sama og hún er þegar þetta er skrifað, kl. 14:10

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun úrvalsvísitölunnar s.l. 3 ára eða frá 10. júní 2005.

Eins og fyrr segir var lokagildi úrvalsvísitalan 4.523 stig við lok markaða þann 12. október 2005. Daginn eftir, 13. október var lokagildi hennar hins vegar 4.554 stig og fór hún hækkandi fram í febrúar 2006 en þann 15. febrúar náði hún 6.925 stigum.

Í kjölfarið tók við niðursveifla fram á sumar en í þeirri sveiflu fór hún lægst þann 27. júlí 2006 eða í 5.259 stig.

Eftir það lá leiðin upp á við og hækkaði úrvalsvísitalan nánast stanslaust þangað til hún náði hámarki þann 18. júlí síðastliðinn eða 9.017 stigum.

Líkt og myndin sýnir hefur leiðin legið að mestu niður eftir það.

Úrvalsvísitalan hefur það sem af er degi í dag lækkað um 1,8.