Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 2,54% í Kauphöllinni í dag. Þá hækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 0,36% og Icelandair Group um 0,15%.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga um 0,27% og Marel um 0,17%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,67% og endaði hún í 1.008 stigum.