Úrvalsvísitalan fór í fyrsta sinn yfir 6.250 stig í dag og hefur hún hækkað um 12,87% á árinu.

Þá hækkun leiðir FL Group með 22% hækkun, Íslandsbanki með 20,8% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 15%, segir greiningardeild Íslandsbanka.

Í dag hefur FL Group hækkað um 2,21% og Kaupþing banki um 1,82%.