Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland stóð í stað í dag en frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 2,21%.

Gengi bréfa Össurar hækkaði mest eða 1,87% þá hækkuðu gengi bréfa HB Granda um 1,05%.

Gengi bréfa Regins lækkuðu um 0,97% og gengi bréfa VÍS um 1%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 587,7 milljónum króna og var veltan mest í viðskiptum með bréf HB Granda, en þau námu 291,7 milljónum króna.