Úrvalsvísitalan kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,07% í dag og endaði í 1.412,79 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 7,77%.

Gengi bréfa Össurar hækkuðu mest eða um 2,06%, þá hækkuðu bréf Icelandair um 1,77% og bréf Eimskipa um 1,64. Mest voru viðskipti með bréf Icelandair en þau námu rúmum 740 milljónum.

Bréf TM og VÍS voru einu félögin sem lækkuðu í dag þó lítillega eða um 0,51% og 0,26%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 1,8 milljarði króna.