Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 1,6% á fremur rólegum degi í Kauphöllinni í dag. Þetta er eina hækkun dagsins á móti 7% falli hlutabréfa BankNordik.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,51% í viðskiptum upp á tæpar 50 milljónir króna. Mest var veltan með hlutabréf Haga upp á tæpar 46 milljónir króna.

Vísitalan stendur nú í 957,61 stigi.