Úrvalsvísitalan (OMXI10) hækkaði um 3,0% í júlí (30,7% á árinu) og stendur nú í 2.108 stigum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðskiptayfirliti frá Kauphöllinni.

Heildarviðskipti með hlutabréf í júlí námu 57,7 milljörðum eða 2.507 milljónum á dag. Það er 77% hækkun frá fyrri mánuði, en í júní námu viðskipti með hlutabréf 1.463 milljónum á dag.  Þetta er 56% hækkun á milli ára (viðskipti í júlí 2019 námu 1.609 milljónum á dag).

Mest voru viðskipti með bréf Arion banka, 30,3 milljarðar, Marel (MAREL), 5 milljarðar, Símans, 4,2 milljarðar, Haga, 2,7 milljarðar og Icelandair Group, 2,3 milljarðar.

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar voru Fossar Markaðir með mestu hlutdeildina, 54,9% (22,4% á árinu), Íslandsbanki með 12,8% (18,1% á árinu) og Arion Banki með 10,4% (20,7% á árinu).

Í lok júlí voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.196 milljörðum króna (samanborið við 1.172 milljarða í júní).