Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,64% í dag og endaði í 1,919 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 2,09% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair, eða um 2,06% í 2 milljarða króna viðskiptum. Gengi bréfa Haga hækkaði um 0,44% í 311 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa Eikar fasteignafélags um 0,61% í 362 milljóna króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Marel um 0,79% í 252 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í dag í 4,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 3,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 2,8 milljarða króna viðskiptum.