Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,19% í dag og endaði í 1.760,07 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,40% frá áramótum.
Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 1,40% í viðskiptum sem hljóða upp á 269 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 46,95 krónum á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 0,39% í 356 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 255 krónum.
Mest lækkaði gengi bréfa Reita, eða um 0,36% í viðskiptum sem hljóða upp á 22 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 82,10 krónur. Gengi bréfa Icelandair Group stóð í stað í dag, en velta með bréfin var 417 milljónir króna. Hvert bréf kostar þá 31 krónu.
Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 2,2 milljarðar króna.
Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í dag í 1,3 milljarða króna viðskiptum.
Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 1,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 1,5 milljarða króna viðskiptum.