Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,14% í dag og endaði í 1755,69 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,63% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,14% í viðskiptum sem hljóða upp á 137 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 31,10 krónum á hlut. Gengi bréfa Regins hækkaði þá einnig, eða um 1,46% í 58 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 22,58 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,79% í viðskiptum sem hljóða upp á 154 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 250,50 krónur. Gengi bréfa Reita lækkaði þá einnig, eða um 0,60% í viðskiptum sem hljóða upp á 57 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 82,4 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 802 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 1,5 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 0,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 1,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 0,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,6 milljarða króna viðskiptum.