Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði nú undir lok dags og hafði hækkað um 0,7% við lokun Kauphallarinnar. Úrvalsvísitalan stendur nú í 5.429 stigum.

Samkvæmt upplýsingum frá M5.is hækkaði FL Group [ FL ] mest fyrirtækja í dag eða um 3,17%. Þá hækkuðu Spron [ SPRON ] og Exista [ EXISTA ] um 2%.

Föroya Banki [ FO-BANK ] lækkaði mest fyrirtækja eða um 2,3%. Þá lækkaði Icelandair Group [ ICEAIR ] um 1% og 365 [ 365 ] um 0,7%.

Velta með hlutabréf var um 6,1 milljarður. Þar af voru um 2,4 milljarðar með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og sitt hvor milljarðurinn með bréf í Glitni [ GLB ] og Landsbankanum [ LAIS ].