Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.919 stigum.

Velta með hlutabréf er um 1,4 milljarður.

13 félög mynda nú Úrvalsvísitöluna eftir að FL Group var fjarlægt úr vísitölunni í morgun .

Lítil hreyfing er á gengi krónunnar en hún hefur þó veikst um 0,1%.