Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,2% það sem af er degi og stendur nú, kl. 10:35í 4.870 stigum.

FL Group [ FL ] hefur hækkað mest félaga eða um 2,5%. Þá hefur Glitnir [ GLB ] hækkað um 1,8% og Century Aluminum [ CENX ] um 1,5%.

Atlantic Airways [ FO-AIR ] og Teymi [ TEYMI ] hafa lækkað mest félaga eða um 0,9% og þá hefur 365 [ 365 ] lækkað um 0,8%.

Velta með hlutabréf er um 1,1 milljarður en þar af eru um 560 milljónir með bréf í Glitni.