[ GLB ]Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 1,28% síðan opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.947 stigum.

FL Group [ FL ] hefur hækkað mest félaga eða um 3,7%. Þá hefur Marel [ MARL ] hækkað um 3,5% og Glitnir  um 2,7%.

Aðeins tvö félög hafa lækkað það sem af er degi. Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 3,4% og Atorka [ ATOR ] um 0,5%.

Velta með hlutabréf er um 2,5 milljarðar.