Hlutabréfamarkaðurinn byrjar daginn með látum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,90% það sem af er degi og er 5.492,23 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Landsbankinn hefur hækkað um 4,37%, Kaupþing banki hefur hækkað um 3,34%, FL Group hefur hækkað um 2,81%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 2,45% og Glitni hefur hækkað um 1,20%.

Ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi.

Gengi krónunnar hefur styrkst um 1,26% og er gengisvísitala hennar 126,14 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.