Markaðurinn fer vel af stað í morgun. Úrvalsvísitalan hækkar um 0,79%, en hún lækkaði um 1,64% í gær í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 75 punkta.

Alfesca hækkar um 2,50%, Landsbankinn hækkar um 2,45%, Mosaic Fashions hækkar um 2,31%, Össur hækkar um 0,88% og Kaupþing banki hækkar um 0,73%.

Gengisvísitala íslensku krónunnar styrkist um 0,45% og er 119,48 stig.