Markaðurinn fer vel af stað í morgun. Úrvalsvísitalan hækkar um 1,19% og er 5.685,73 stig.

Fjögur fyrirtæki hækka, það sem af er dags. FL Group hækkar um 2,02%, Landsbankinn hækkar um 1,74%, Kaupþing banki hækkar um 1,31% og Glitnir hækkar um 1,18%.

Ekkert félag lækkar.

Gengisvísitala krónunnar hækkar um 0,04% og er 124,54 stig.