Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,55% það sem af er degi og er 5.728,58 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Ef heldur áfram sem horfir verður þetta fjórði dagurinn í röð sem markaðurinn hækkar eftir töluverðar lækkanir síðustu vikur.

Actavis Group hefur hækkað um 3,06%, FL Group hefur hækkað um 2,51%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,67%, Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,18% og Glitnir hefur hækkað um 1,16%.

Avion Group er eina félagið sem lækkað hefur það sem af er degi og nemur lækkunin 0,25%.

Gengisvísitala krónunnar hefur hækkað um 0,59% og er 129,2 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka, og hefur krónan lækkað um sem því nemur.