Úrvalsvísitalan braut fyrir nokkrum mínútum síðan 6.000 stiga múrinn en svo hátt hefur hún aldrei farið. Það sem hefur leitt hækkunina í dag er 2,56% hækkun Íslandsbanka en Bakkavör hefur hækkað um 1,81% og Mosaic um 1,55%. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur verið mjög líflegur það sem af er ári en vísitalan hefur hækkað um 8,7%.

Nokkur stærstu félögin í Kauphöllinni hafa hækkað mikið það sem af er ári. Íslandsbanki hefur hækkað um 15,6%, FL Group um rúm 15%, Actavis um 14,3% og Bakkavör um 10,8%.