Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkaði um 0,28% í rúmlega 60 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 0,24% á sama tíma í tæplega fimm milljóna króna veltu.

Engin önnur hreyfing var á gengi hlutabréfa.

Talsverð velta var á hlutabréfamarkaði, rúmar 244 milljónir króna.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,25% og endaði hún í 1.000 stigum.