Heildarvelta í Kauphöllinni nam 9,4 milljörðum í dag. Þar af nam velta á skuldabréfamarkaði 9 milljörðum, velta á hlutabréfamarkaði 345 milljónum og velta á First North nam 253 þúsund.

Átta félög lækkuðu og mest lækkaði Reginn um 1,25% og HB grandi um 1,22%. Tryggingafélögin VÍS og TM lækkuðu en Sjóvá hækkaði um 0,52%.

Fjarskipti hækkuðu mest eða um 1,58% og Eimskip um 0,88%. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,12% í dag.