Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,18% í viðskiptum dagsins og stendur hún nú í 1789,19 stigum eftir 941 milljóna króna viðskipti.

Gengi bréfa Reginn lækkaði um 1,31% og Eikar fasteignafélags um 0,93% en lítil viðskipti voru með bréf þessara félaga

Gengi bréfa TM hækkaði um 1,88% í 68 milljóna króna viðskiptum og Vodafone um 1,48% í 49 milljóna viðskiptum.

Mest velta var í viðskiptum með bréf Icelandair Group sem stóðu í stað í tæplega 300 milljóna króna viðskiptum.

Vísitölur Gamma

Skuldabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,3% í tæplega milljarðs króna viðskiptum. Þar lækkaði verðtryggði hluti vísitölunnar um 0,49% á meðan sá óverðtryggði hækkaði um 0,14%.