Gengi hlutabréfa Haga lækkaði um 0,81% í viðskiptum upp á rúma 61 milljón króna í Kauphöllinni í dag. Gengið stendur nú í 18,45 krónum á hlut. Þá lækkaði gengi hlutabréfa stoðfyrirtækisins Össurar um 0,48%.

Einungis bréf Icelandair Group hækkuðu í verði í dag eða um 0,76%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,17% í rúmlega 92 milljóna króna veltu og endaði hún í 1.068 stigum.