Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 0,34% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.132,72 stigum. Gengi bréfa Haga hækkaði um 1,04%, Regins um 0,41% og Icelandair um 0,32%. Hins vegar lækkaði gengi bréfa Marels um 1,33%, Fjarskipta um 0,45% og Eimskipafélagsins um 0,39%. Velta á hlutabréfamarkaði nam tæpum 411 milljónum króna í dag.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,09% í 2,17 milljarða króna viðskiptum á skuldabréfamarkaði. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,13% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,03%.