Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 2,57% í viðskiptum dagsins, einkum vegna 4,98% lækkunar á gengi bréfa Marels. Hins vegar lækkuðu bréf Össurar um 1,93% og Haga um 0,55%. Á móti kom 1,35% hækkun á gengi bréfa Icelandair og 0,48% hækkun á bréfum Regins.

Velta í Kauphöllinni nam 253,6 milljónum króna í dag. Það sem af er ári hefur Úrvalsvísitalan hækkað um 10,95%.