Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,96% í 106,5 milljóna króna viðskiptum í dag og var lokagildi hennar 1041,46 stig. Gengi bréfa Marels lækkaði um 1,62%, Össurar um 1,19% og Haga um 0,55%. Hins vegar hækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,15%. Gengi bréfa Hampiðjunnar hækkaði um ein 17,65% í 200.000 króna viðskiptum á First North markaðnum í dag.