Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,13% í dag og endaði í 1.382,94 stigum. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,66%, Regins um 0,45% og Sjóvár um 0,43%. Gengi bréfa Haga lækkaði aftur á móti um 1,18% og HB Granda um 0,14%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 1.141 milljón króna og var mest velta með hlutabréfa Icelandair, eða 396,4 milljónir króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,01% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,02%, en sá óverðtryggði lækkaði um 0,03%. Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,02%.