Gengi hlutabréfa BankNordik í Færeyjum lækkaði um 0,78% og gengi hlutabréfa Marel lækkaði um 0,72% í afar litlum viðskiptum í Kauphöllinni. Veltan nam aðeins 2,6 milljónum króna. Þá lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,5% í viðskiptum upp á rúmar 4,3 milljónir króna.

Á móti hækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 0,33% og gengi bréfa Icelandair Group um 0,14%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,48% í tæplega 101 milljóna króna veltu og endaði hún í 992 stigum.