Úrvalsvísitalan OMXI6 lækkaði um 0,3% í dag. Velta á hlutabréfamarkaði var um 150 milljónir króna og viðskipti voru 45. Hefur vísitalan hækkað um 4,2% frá áramótum.

Líkt og síðustu daga voru viðskipti langmest með Icelandair Group, eða um 120 milljóna króna velta. Bréf í félaginu lækkuðu um 1,2% og er gengi þeirra 4,07.

Marel lækkaði um 0,88% og er gengið 113.