Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði í dag um 0,21% í viðskiptum dagsins. Velta á hlutabréfamarkaði var 693 milljónir.

Gengi bréfa Reita fasteignafélags hækkaði mest eða um 0,89% í 21 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskipafélags Íslands um 0,61% í 529,9 milljón króna viðskiptum. Mest velta var með gengi bréfa Eimskipafélagsins.

Gengi bréfa Sjóvá lækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 1,19% í 26,5 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Haga talsvert eða um 0,96% þó í litlum viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 4,7 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 700 milljóna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 4 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,5 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 3 milljarða viðskiptum.