Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 2,17% í dag en vísitalan hefur lækkað alla viðskiptadaga þessarar viku. Vísitalan lækkaði um 1,08% á mánudag og 1,77% í gær og hefur því samtals lækkað um 4,9% það sem af er vikunni eins og kemur fram í Hálffimm fréttum KB banka. Burðarás hefur lækkað mest en öll félögin í Úrvalsvísitölunni hafa lækkað í vikunni. Mest hafa bréf Burðaráss lækkað, eða um 6,3%.