Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur tekið dýfu frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni fyrir um tíu mínútum og hefur lækkað um 2,7% og stendur þegar þetta er skrifað, kl. 10:12 í 4.868 stigum.

Aðeins tvö félög hafa hækkað, Century Aluminum [ CENX ] um 1,2% og Össur [ OSSR ] um 0,75%.

Þá hefur Exista [ EXISTA ] lækkað mesta félaga eða um 5,4%. Spron [ SPRON ] hefur lækkað um 5,25% og FL Group [ FL ] um 4,9%.

Velta með hlutabréf er um 1,1 milljarður.