Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 2,5% frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni kl. 10 í morgun.

Þá hafa nokkur fyrirtæki lækkað nokkuð hratt í upphafi dags. Þannig hefur Föroya banki [ FO-BANK ] lækkað um 5,3%, Eik banki [ FO-EIK ] um 4,58% og FL Group [ FL ] um 4,56.

Aðeins eitt fyrirtæki, Century Aluminum [ CENX ] hefur hækkað en sú hækkun nemur 0,1%.

Lækkun í Evrópu og Asíu

Markaðir lækkuðuð einnig í Evrópu í upphafi dags. Þannig lækkaði FTSEurofirst 300 um 3,2% strax í morgun auk þess sem FTSE 100 vísitalan hefur lækkað um 2,4%.

Þá hefur OMXC vísitalan í Kaupmannahöfn lækkað um 1,67%, OBX vísitalan í Osló um 2,5% og DAX vísitalan í Frankfurt um 3,34%.

Í Asíu var einnig lækkun á mörkuðum en hlutabréf í Japan lækkuðu í dag um 3,7%, í Hong Kong um 4,1%, í Shanghæ í Kína um 5% og á Tævan um 2,3%.