Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,4% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.780 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 750 milljónir en þar af eru um 240 milljónir með bréf með Kaupþing og 210 milljónir með bréf í Glitni.