Úrvalsvísitalan hefur lækkað það sem af er degi og um hádegisbil hafði hún lækkað um 0,38%. Þá stóð hún í 350,83 stigum.

Mest viðskipti hafa verið með bréf í Straumi og hafa þau hækkað um 1,61% það sem af er degi. Þá hefur Bakkavör hækkað lítillega eða um 0,40% og sömuleiðis Marel um 0,39%.

Össur hafði hins vegar í hádeginu lækkað um 0,70%.