Markaðurinn byrjar daginn á því að lækka en ekkert félag hefur hækkað það sem af er dagi. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,60% og er 5.446,51 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Landsbankinn hefur lækkað um 2,22%, FL Group hefur lækkað um 1,52%, Atorka hefur lækkað um 0,89%, Actavis Group hefur lækkað um 0,85% og Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,60%.

Gengisvísitala krónunnar hefur hækkað um 1,82% og er 133,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.