Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,4% í morgun og er nú komin niður fyrir 6.000 stig - hefur ekki verið lægri síðan í september 2006. Exista [ EXISTA ] og SPRON [ SPRON ] hafa lækkað mest, um 7%, þar á eftir FL Group [ FL ] um 4%. Hlutabréfavelta í Kauphöll Íslands í morgun nemur 5,6 milljörðum króna.