Gengi hlutabréfa færeyska bankans BankNordik hækkaði um 2,33% í Kauphöllinni í dag. Þá hækkaði gengi bréfa Haga-samstæðunnar um 1,32%.
Á sama tíma lækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,25%.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,16& og endaði hún í 999 stigum. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 316 milljónum króna.