Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,14% í dag og fór yfir 5.300 stig og stóð í 5.305 stigum í lok viðskipta.

Vísitalan hefur hækkað um 56% frá áramótum. Mest var hækkunin á gengi bréfa FL Group, eða 1,75%. Landsbankinn, sem hefur hækkað um 105% frá áramótum, hækkaði um 1,25%. Gengi bréfa Kaupþings banka hækkaði um 1,04%.