Á morgun, 22. september, hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninganna 29. október næstkomandi. Atkvæðagreiðslan fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Færeyjum.

Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, en væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa, segir í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins.

„Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningunni.

Hér má nálgast lista yfir ræðismenn Íslands erlendis.