Utanríkisráðherrar Norðurlandanna munu funda í Reykholti, dagana 29. og 30. apríl, í boði Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra.

Á dagskrá fundarins verða m.a. norræn samvinna og samresktur, öryggismál, norðurslóðamál, ástandið í Úkraínu og undirbúningur fyrir fund Atlantshafsbandalagsins í september.