Jørgen Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja til Íslands í dag í opinbera heimsókn. Niclasen kemur í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra.

Á morgun mun hann eiga fund með Ingibjörgu Sólrúnu. Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að rætt verði um framkvæmd og þróun fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja, ,,Hoyvíkursamningsins", á þeim tveimur árum sem nú eru liðin frá gildistöku hans.

Einnig verður rætt um gjaldeyrislán Færeyja til Íslands og stöðuna í efnahagsmálum.