Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur í dag og í gær átt fundi á Möltu, meðal annars með Lawrence Gonzi forsætisráðherra og Tonio Borg utanríkisráðherra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en Malta er eitt af minnstu ríkjum  Evrópusambandsins og er, að sögn ráðuneytisins, þekkt fyrir árangursríkt samstarf vítt og breitt um þjóðfélagið í aðdraganda aðildar.

Í tilkynningunni kemur fram að utanríkisráðherra kynnti sér sérstaklega það víðtæka samráðsferli sem Maltverjar settu á laggirnar í undirbúningi aðildarviðræðna þar sem  áhersla var lögð á samvinnu við ólíka hagsmunaaðila og skoðanahópa.

„Í umræðum á Alþingi í síðustu viku þar sem fjallað var um tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu um undirbúning aðildarumsóknar lögðu fulltrúar allra stjórnmálaflokka áherslu á öflugt samráð í því lýðræðislega ferli sem framundan er,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur einnig fram að utanríkisráðherra átti fund með Richard Cachia Caruana sendiherra Möltu hjá Evrópusambandinu og öðrum sérfræðingum en Caruana var aðalsamningamaður þjóðarinnar við Evrópusambandið. Malta náði fram ýmsum sérlausnum á mikilvægum sviðum í aðildarviðræðunum.