Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra heimsótti Grænland um helgina.

Á föstudag varð ferðinni heitið til Nuuk til að eiga viðræður við grænlensku heimastjórnina um aukin viðskipti landanna.

Sérstakt áherslumál í ferðinni voru nánari tengsl byggða á Vestfjörðum og Norð-vesturlandi við Grænland sem og ferðaþjónusta, málefni norðurslóða, öryggismál, loftslagsbreytingar og vísinda- og menningarsamskipti, samkvæmt því sem kemur fram á vef utanríkisráðuneytsins.

Þá var utanríkisráðherra sérstakur gestur hátíðahalda á laugardag, 21. júní í tilefni þjóðhátíðardags Grænlendinga í boði Alequ Hammon sem fer með fjármál og alþjóðamál í heimastjórn Grænlands.

Með utanríkisráðherra í för voru bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, ferðamálastjóri og fulltrúar Háskólans á Hólum og háskólasetursins á Ísafirði.

„Samstarf Íslands og Grænlands nær nú einkum til samgangna, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála, heilbrigðisþjónustu og umhverfisverndar. Ríkur gagnkvæmur áhugi er á að færa samvinnu til fleiri sviða og dýpka þá sem fyrir er,“ segir á vef ráðuneytisins.