Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, undirritaði í Osló í dag alþjóðlegan samning um bann við klasasprengjum.
Samningurinn bannar þróun, framleiðslu, notkun, birgðasöfnun og afhendingu klasasprengja.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en samningurinn var undirritaður af hálfu 125 ríkja í dag.
Noregur, Perú, Austurríki, Nýja Sjáland og Írland fóru fyrir gerð samningsins um bann við klasasprengjum en samkvæmt tilkynningunni hefur Ísland frá upphafi tekið þátt í samningsferlinu. Þá hafa Rauði Krossinn og önnur frjáls félagasamtök einnig beitt sér fyrir banninu.
Í tilkynningunni kemur fram að Ísland hefur aðstoðað önnur ríki við hreinsum klasasprengjusvæða, nú síðast Líbanon. Ísland hefur einnig aðstoðað fórnarlömb jarð- og klasasprengja, m.a. með því að styrkja smíði gerfilima.
Samningurinn sem undirritaður var í dag gerir ráð fyrir áframhaldandi alþjóðasamstarfi á þessu sviði, bæði hreinsun svæða þar sem klasasprengjum hefur verið beitt, svo og aðstoð við fórnarlömb. Mikið starf er einnig framundan við eyðingu birgða.